Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, kveðst reiðubúin að taka við leiðtogahlutverkinu í næstu ríkisstjórn landsmanna, en hún setur það sem skilyrði að hún verði félagshyggjustjórn með þau skýru markmið að auka velferð og bæta hag almennings.
Þetta kom fram í samtali hennar og Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld, en þar fjallaði hún um líf sitt og starf allt frá fyrstu dögum í Vogahverfinu í Reykjavík.
Katrín var feimið og einrænt barn sem leið best þegar hún gat lokað að sér heima hjá sér og sökkt sér ofan í hverja bókina af annarri. Ef krakkarnir í götunni komu og spurði eftir henni svaraði hún því til að hún væri upptekin inni við að lesa.
Allt breyttist svo á unglingsárunum þegar litla stelpan varð að félagsmálatrölli sem vildi sigra heiminn. Í fyrstu hvarflaði hugurinn til þess að flytja til Frakklands og gerast einfaldlega bóhem, en lendingin var aðeins hversdagslegri, íslenska í Háskóla Íslands sem endaði á lokaritgerðinni um íslensku sakamálasöguna, en Katrín segist vera grúppía krimmans.
Hún segir alla þessa sögu sína af hispursleysi í Mannamáli, en þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar, svo sem eins og alla aðra þætti Hringbrautar.
Mannamál eru frumsýnd öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30.