Var farin að einangrast

Ugla Stefanía Jónsdóttir transkona og formaður Trans Ísland sagði einlæglega frá breytingunni sem varð á lífi hennar þegar hún ákvað að lifa sem kona í nýjasta þætti Kvennaráðs á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem frumsýndur var í gærkvöld. Hún hóf kynleiðréttingarferli ung að árum, eða aðeins um 18 ára aldur og segist þá hafa verið farin að einangrast. Eftir að hún hóf ferlið hafi hún þó orðið fyrir eins konar frelsun og lífið hafi breyst til muna. Eftir umskiptin hafi hún farið að taka þátt í félagsstarfi og öðru sem hún hafi forðast áður, eins og hún komst að orði við Björk Eiðsdóttur í þættinum í gær, en hann má sjá að hluta í klippunum hér á forsíðu hringbrautar.is og bráðum einnig í heild sinni undir sjónvarpsflipanum.


Horfa á Kvennaráð hér: