Hinn landsþekkti skemmtanakóngur til áratuga, Ólafur Laufdal, sem rekið hefur Hótel Grímsborgir frá 2009 sagðist í sjónvarpsþættinum Atvinnulífið á Hringbraut í gærkvöld leggja sig í framkróka við að flagga alltaf þjóðfánum þeirra gesta sem sækja gistingu hans heim. Fjögurra stjarna hótel hans í sveitakyrrðinni fyrir austan fjall hefur vakið athygli fyrir smekkvísi í hönnun, en eins og fram kom í þættinum í gær er Ólafur á heimavelli þegar kemur að því að taka vel á móti gestum. Hann segist eiga all flesta þjóðfána í heimi og það gleðji óneitanlega erlenda gesti, rétt eins og alla Íslendinga erlendis, að sjá sinn eigin fána við hún.