Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra stóð af sér vantrauststillögu Samfylkingarinnar og Pírata í garð hennar. 33 þingmenn stjórnarflokkanna greiddu atkvæði gegn vantrausti á ráðherrann en 29 þingmenn stjórnarandstöðunnar og tveir þingmenn VG, þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi Jónsson, greiddu atkvæði með tillögunni. Einn þingmaður Miðflokksins greiddi ekki atkvæði.
Atkvæði voru greidd á áttunda tímanum í kvöld.