Tveir þingmenn stjórnarmeirihlutans, þau Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmenn VG, studdu tillögu Pírata og Samfylkingarinnar um vantraust á dómsmálaráðherra á Alþingi í gærkvöld.
Það dugði þó ekki til, en tillagan var felld, eins og raunar búist var við fyrirfram með 33 atkvæðum gegn 29. Aðrir þingmenn VG en Andrés og Rósa Björk vörðust vantrausttillögunni eins og um vantraust á ríkisstjórnina væri að ræða, en margir þeirra deildu hart á sama dómsmálaráðherra á síðasta ári fyrir það sem þá var kallað embættisafglöp, þar á meðal Katrí jakobsdóttir, formaður VG, sem hagaði orðum sínum öðruvísi í gær.