Þingflokkar Samfylkingar og Pírata hafa lagt fram vantrauststillögu á dómsmálaráðherra, Sigríði Á. Andersen. Tillagan var send inn laust fyrir miðnætti í gær.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokkunum í morgun, en þar segir að hefð sé fyrir því að vantrauststillögur séu teknar á dagskrá þingsins við fyrsta tækifæri.
Sigríður Á. Andersen, dómsmalaráðherra hefur leegið undir ámæli um margra mánaða skeið fyrir meint embættisafglöp, en Hæstiréttur hefur meðal annars komist að þeirri niðurstöðu að hún hafi farið á svig við lög og reglur þegar hún skipaði dómara í nýjan landsrétt, en þar fór hún gegn tillögur hæfisnefndar í veigamiklum atriðum.
Stjórrnarandstaðan á Alþingi hefur ekki sagst geeta sætt sig við setu ráðherrans í embætti, en athygli vekur nú að Viðreisn, Flokkur fólksins og Miðflokkurinn sitja hjá við framlagningu vantrauststillögunnar.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra hefur síðusttu daga ítrekað stuðning sinn við Sigríði Á. Andersen, en hún var mjög gagnrýnin á embættisgjörðir hennar í tíð síðustu ríkisstjórnar undir forsæti Bjarna Benediktssonar og talaði þá á svipuðum nótum og stjórnarandstaðan gerir í dag.