Umskipti hafa orðið í atvinnulífi sunnanverðra Vestfjarða. Skortir nú starfsfólk í mörgum greinum. Ástæðan er ör vöxtur í fiskeldi.
Friðbjörg Matthíasdóttir starfandi bæjarstjóri Vesturbyggðar segir ungt fólk hafa snúið aftur.
Víkingur Gunnarsson framkvæmdastjóri hjá Arnarlaxi telur að hundruð starfa skapist á næstu árum á Vestfjörðum. Að því tilskyldu að áform Arnarlax rætist.
Arnþór Gústafasson framleiðslustjóri hjá ArcticFish segir áformað að þrettánfalda framleiðslu ArcticFish.
Indriði Indriðason oddviti Tálknafjarðahrepps segir stjórnvöld vera svifasein hvað fiskeldið áhrærir.
Meira er um þetta í fréttskýringu um atvinnumál á Vestfjörðum í Morgunblaðinu í dag.
Nánar www.mbl.is