Vanskil minnka með meiri atvinnu

Vanskil Íslendinga hafa minnkað að mun frá því þau voru hvað mest á allra síðustu árum og helst það í hendur við meiri atvinnu sem er að skapast hér á landi.

Þetta kemur fram í svari á upplýsingaveitunni Spyr.is, en þar segir að vanskil landsmanna hafi náð hápunkti í maí 2013, ef tekið sé mið af því hvenær mesti fjöldi einstaklinga var á vanskilaskrá Creditinfo. Vanskil hafi minnkað síðan þá og séu að því leytinu í takt við minnkandi atvinnuleysi, sem fjölmiðlar hafi greint frá.

Það var lesandi upplýsingaveitunnar sem spurðu um þetta atriði nýverið, en Spyr.is leitast við að svara öllum spurningum almennings sem þangað berast. Í svari Brynju Baldursdóttur, framkvæmdastjóra Creditinfo kemur fram að hálft sjötta prósent einstaklinga hafi verið í vanskilum í ársbyrjun 2008, en það hlutfall hafi farið jafnt og þétt vaxandi á árunum eftir hrun og náð níu prósentum 2013, en mælist nú vel undir 8 prósentum.