Vannessa Trump hefur sótt um skilnað frá Donald Trump Jr. að því er kemur fram í New York Post í dag. Þar segir í yfirlýsingu frá hjónunum: „Eftir 12 ára hjónaband höfum við ákveðið að nú skilji leiðir. Við viljum biðja um næði í þennan tíma.“
Þau eru bæði fertug, hafa verið gift síðan 2005 og eiga fimm börn. Donald Trump yngri hefur ásamt Eric bróður sínum rekið fyrirtæki Trump feðga í New York, en bræðurnir voru báðir virkir í kosningabaráttu föðurins.
Trump Jr. er til viðfangsefni sérstakrar rannsóknar á afskiptum Rússa í kosningabaráttunni. Fundur Trumps Jr og fleiri með rússneskum erindrekum í Trump turninum í New York sumarið 2016 hefur verið til sérstakrar skoðunar af hálfu Roberts Muellers sérstaks saksóknara.