Vann fyrir tvö ráðuneyti án útboðs

Fyrirtæki á vegum Guðfinnu Bjarnadóttur, fyrrverandi þingkonu Sjálfstæðisflokksins hefur á undanförnum árum unnið verkefni fyrir tvö ráðuneyti án útboðs eða auglýsingar, en samtals er kostnaður vegna þeirra nálega 30 milljónir króna.

Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að fyrirtækið sem hér um ræðir vann ekki einvörðungu að læsisverkefni fyrir menntamálaráðuneytið eins og fram kom í síðustu viku, heldur einnig verkefni fyrir atvinnuvegaráðuneytið um stefnumótun í ferðaþjónustu. Hvorugt þessara verkefna var auglýst á almennum  markaði eða boðið út. Fyrir læsisverkefnið fékk fyrirtæki Guðfinnu 11,6 milljónir króna, fyrir ferðaþjónustuverkefnið fékk það 17,2 milljónir, eða samanlagt 28,8 milljónir króna.

Guðfinna var alþingismaður Sjálfstæðisflokksins á árunum 2007 til 2009, en stjórnaði þar áður Háskólanum í Reykjavík.

Haft er eftir þingmanni Pírata í Fréttablaðinu í morgun að hann vilji taka upp málið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, en þar verði samningar þessir skoðanir svo sem eðlilegt hljóti að teljast. Haft er einnig eftir Grétari Þór Eyþórssyni, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri að stjórnsýslan sé á hálum ís í þessu máli; tengsl Guðfinnu við Sjálfstæðisflokkinn hljóti að gera málið tortryggilegt, það sé svolítið pólitískt svell að semja svona við fyrrverandi liðsfélaga sinn án útboðs.