Vann aðalverðlaun með sinni fyrstu bók

Snorri Baldursson líffræðingur varð þess áskynja þegar hann hóf kennslu í kringum 1980 að það vantaði sárlega kennslubók í líffræði fyrir framhaldsskólanemendur. Hann er því búinn að hafa bók sína, Lífríki Íslands lengi í huga, en bókin, sem kom út í fyrra og seldist upp, hefur nú verið endurútgefin. Að meginhluta vann hann að þessu viðamikla verki sínu síðustu sex árin og hann getur ekki kvartað yfir uppskerunni; Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka féllu í hans skaut núna í upphafi ársins.


Fáheyrt, ef ekki einsdæmi er að þessi æðstu verðlaun íslenskrar bókaútgáfu komi í hlut manns sem er að gefa út sína fyrstu bók, en það þarf þó ekki að rýna lengi í stórvirki Snorra til að átta sig á að verðlaunin eru fyllilega verðskulduð; alla bókina á enda tekst honum að þræða einstigið milli fræðilegrar nákvæmni þar sem hvergi er slegið af kröfum vísindanna og áhugaverðs fróðleiks fyrir allan almenning sem lætur sig nátturu Íslands og vistkerfi þess varða.


Snorri var gestur heilsu- og útivistarþáttarins Lífsstíls í gærkvöld og fór víða í samtali sínu við Sigmund Erni um breytingar á lífríkinu til lands og sjávar. Hægt er að nálgast þáttinn undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og eins stuttar klippur úr viðtalinu hér að neðan.