Vandvirkur vélamaður sóttur heim

Bíladelluþátturinn Kíkt í skúrinn er á sínum stað klukkan 20:30 á Hringbraut í kvöld en þar verður meðal annars rætt við Benedikt Eiríksson sem kunnur er út torfærunni frá því á árum áður og margfaldur Íslandsmeistari.

Kappinn bjó og keppti í Bandaríkjunum um tíma, en eftir að hann flutti aftur heim byrjaði hann að vinna við smíðar á keppnisvélum. Hann er fyrir löngu búinn að skapa sér eigið vörumerki, Benny\s racing og hefur frá mörgu að segja inni í sínum glæsilega skúr þar sem flottar vélar eru í hverju horni.

Wings´n Wheels er árlegur viðburður sem haldinn er á Tungubökkum í Mosfellsbæ. Í þættinum er þeim viðburði gerð skil með viðtali við Sigurjón Valsson sýningastjóra með meiru og hann leiðir áhorfendur í allan sannleika um fyrirbærið.

Þá er einnig rætt við Ragnar Jónasson sem er hvatamaður að stofnun Fergusonfélagsins á Íslandi og spjallað við mig þegar hópakstur Fergusonfélagsins kom til baka á Tungubakka eftir að hafa ekið hring um Mosfellsbæ í tilefni bæjarhátíðarinnar Í túninu heima.

Loks er vert að skoða glæsilega traktora á bílasýningu á Akureyri sem var haldin fyrr í sumar en þar kemur það í hlut Bjarna Kristinssyni að leiða áhorfendur inn á milli gömlu vinnujálkanna.

\"Þetta er svona þáttur um sveitapiltsins draum