Fréttastofa Vísis og Stöðvar 2 hljóp apríl um mitt sumar þegar hún birti frétt um að virðisaukaskattur skilaði Ríkinu litlum sem engum tekjum. Fréttin var byggð á lokaverkefni manns frá Háskólanum á Akureyri.
Hið rétta í málinu kom fram daginn eftir í fréttumBylgjunnar þar sem Þórólfur Matthíasson, prófessor við Hagfræðideild Háskóla Íslands greindi frá því að VSK kerfið sé ein helsta uppspretta tekna Ríkissjóðs.
Tvennt vekur furðu við þetta mál. Í fyrsta lagi að lokaverkefni við háskóla skuli geta verið svona vitlaust. Hitt er skortur á gagnrýnni hugsun á Fréttastofu Vísis og Stöðvar 2. Ekki hefði þurft mikla þekkingu á rekstri Ríkissjóðs til að sjá hversu arfavitlaus niðurstaða lokaverkefnisins er. Í fjarveru þeirrar þekkingar hefði mjög auðveldlega mátt fletta hinu rétta í málinu upp, til dæmis hér.