Er fjármálaráðherra að boða breytt viðhorf til peningamála? Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segir að krónan sé ekki heppilegur gjaldmiðill til frambúðar. Benedikt nefnir sem dæmi að krónan lagi sig ekki að þörfum sjávarútvegsins.Jafnvel lagi króna sig ekki heldur að þörfum ferðaþjónustunnar. Eins og sjá mætti í dag.
Ummæli þessi lét Bendikt falla í spjalli við Heimi Má Pétursson féttamann. Benedikt telur að horfa beri til þess hvar íslenskt atvinnulíf ætti helst viðskipti við skoðun á öðrum gjaldmiðilsmöguleikum. Bendikta sló þó þann varnaggla að engar töfralausnir væri að finna í þessum efnum. Tæki Ísland til að mynda upp evruna þyrftu Íslendingar að laga sig að aðstæðum á vinnumarkaði á evrusvæðinu.
Evran verður ekki tekin upp hér á landi nema Ísland gangi fyrst í Evrópusambandið (ESB). Og fullnægi þar með ströngum skilyrðum um jafnvægi í ríkisfjármálum og um verðbólgu og nafnvexti. Aðild að ESB tekur til fjölmargra annarra þátta en peningamála.
Nánar á www.mbl.is og www.visir.is og www.sa.is