Vandinn hjá vigdísi, ekki andstöðu

Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG, segir að stjórnarandstaðan muni áfram „reka flóttann“ enda verði ákallið um réttlátari ríkisstjórn sífellt háværara.

Í viðtali við Fréttablaðið í dag fer Vigdís Hauksdóttir hörðum orðum um Svandísi og telur hana stjórna rógsherferð gagnvart Framsóknarflokknum, þar sem skilja má að Svandísi sé höfuð umræðu sem miðist að því að valda skaða innan Framsóknarflokksins.

 „Svandís Svavarsdóttir er mjög aggressív í þessa veru, svo fylgja hinir á eftir. Svo er þetta treinað upp á bloggsíðum og í kommentakerfum. Þetta er svona hulduher,“ segir Vigdís í Fréttablaðinu og ræðir fylgistap Samfylkingar og VG í sama mund og jafnvel faðerni Svandísar.

Hringbraut bar ummæli Vigdísar undir Svandísi en hún vildi ekki ræða málið á persónulegum nótum eins og Vigdís kýs að gera.

„Það er greinilegt að það hefur áhrif að stilla saman strengi í gagnrýninni á ríkisstjórnina og ekki síst forsætisráðherra. En þótt okkur þyki ágætt að Vigdís vilji rekja allan vanda Framsóknar til stjórnarandstöðunnar er vandans að leita hjá þeim sjálfum,“ segir Svandís Svavarsdóttir í samtali við Hringbraut.

„Forsætisráðherrann veitir enga forystu og ríkisstjórnin er út og suður í nánast öllum málaflokkum og mikilvæg mál eru í uppnámi. Samfélagið logar í kjaraátökum og blikur eru á lofti með einkavæðingaráform og ójöfnuður eykst í landinu. Ákallið um réttlátari ríkisstjórn verður sífellt háværara. Við höldum áfram að reka flóttann,“ segi Svandís Svavarsdóttir.