Óþreyjunnar í íslensku samfélagi og þá hörku sem nú gætir á vinnumarkaði má að mestum hluta rekja til þess hroka sem enn er til staðar íslensku stjórnmálakerfi. Þetta var mat gestanna í sjónvarpsþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld.
Þátturinn, sem er frumsýndur vikulega klukkan 21.30 á þriðjudagskvöldum á Hringbraut er vettvangur íslenskra ritstjóra á dagblöðum, fréttavefjum og tímaritum til að rýna í íslenskt samfélag, en gestir þáttarins í gær voru Jón Trausti Reynisson ritstjóri Stundarinnar og Þórunn Elísabet Bogadóttir ritstjóri Kjarnans. Þau báru saman viðbrögð breskra stjórnmálaforingja eftir þingkosningarnar þar í landi um síðustu helgi og breytni íslenskra ráðamanna. Í Bretlandi öxluðu menn strax sína ábyrgð og segðu tafarlaust af sér ef flokkur þeirra byði afhroð, en hér heima væri þrásetan þjóðareinkenni; einu gilti í hvaða ógöngur íslenskir stjórnmálamenn rötuðu, þeir segðu ekki af sér nema í örfáum tilfellum þegar nákvæmlega allar bjargir væru þeim bannaðar. Það vantaði alla auðmýkt í íslensk stjórnmál, svo og raunverulegt samtal við þjóðina. Áhugi landsmanna á pólitík hefði samt sem áður aukist til muna, sem og virkni alls almennings í útifundum og mótmælum, en þennan aukna áhuga mætti einmitt rekja til þess að fólk væri búið að fá nóg af hefðbundnum valdastjórnmálum þar sem hagsmunir flokkanna eru oft og tíðum teknir fram yfir hagsmuni heildarinnar.
Þáttinn má sjá í heild sinni með því að smella hér.