Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra fer mikinn á fésbókarsíðu sinni í dag þar sem hann gagnrýnir viðbrögð Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra við fréttum af ferðamönnum sem gengið hafa örna sinna úti í náttúru landsins. Össur segir að vandinn felist vissulega í hegðun - en að hið svokallaða hegðunarvandamál felist mun frekar í verkleysi hennar sjálfrar en salernisvandræðum ferðamanna.
Ragnheiður Elín hafði áður sagt í fjölmiðlum að salernisvandræði ferðamanna væru hegðunarvandamál sem hún vissi ekki hvernig ætti að leysa. Össur gagnrýnir viðbrögð Ragnheiðar: „Hvernig bregst ráðherra ferðamála við? Hún kemur með þá gáfulegu skýringu að þetta sé „hegðunarvandamál.“ Líklegast er hún eini Íslendingurinn sem þekkir ekki þá tilfinningu að vera í spreng eftir að hafa skakast tímunum saman í rútu.“
„Þráinn Bertelsson segir að ráðherrar af kalíber Ragnheiðar Elínar séu sjaldgæfir. Það er rétt hjá honum. Þeir eru sem betur fer einsdæmi. Eftir tvö og hálft ár í embætti hefur nær ekkert gerst hjá Ragnheiði Elínu í uppbyggingu á ferðamannastöðum, segir Össur\"
Og hann heldur áfram: „Á meðan fjölgar ferðamönnum stöðugt – ekki síst vegna velheppnaðra og margverðlaunaðra herferða síðustu ríkisstjórnar sem enn eru í gangi – einsog „Inspired by Iceland“ og „Ísland allt árið.“ Á mörgum fjölsóttum stöðum eru innviðir að springa. Sums staðar ríkir öngþveiti, þar sem aðþrengdir útlendingar ganga örna sinna á víðavangi eða álfreka í görðum heimamanna.\"
„Staðreyndin er því miður sú að rót vandans liggur í henni sjálfri. Á tveimur og hálfu ári hefur Ragnheiður Elín engu komið í verk til að tryggja tekjustreymi til að byggja upp innviði á ferðamannastöðum, skrifar Össur.\"
Undir lok pistilsins verður Össur harðorður: „Eina „afrek“ hennar er hinn steindauði náttúrupassi sem allir, jafnt hennar flokkur sem ferðaþjónustan, skutu á bólakaf enda alvitlausasta hugmynd sem fram hefur komið í áratugi. - Síðan hefur varla til ráðherrans spurst. Í dag kom þó í ljós að hún er enn í embætti þegar hún gaf hina gáfulegu yfirlýsingu um að það væri „hegðunarvandamál“ að útlendingum yrði mál eftir að hafa hossast um hálendið. - Að sönnu má fallast á að vandinn felist í hegðun. En liggur ekki í augum uppi að „hegðunarvandamál“ Ragnheiðar Elínar er verkleysi hennar sjálfrar?\"