Jóna Hrönn Bolladóttir sóknarprestur í Garðakirkju kom með sína greiningu á vanda íslenskrar stjórnmálaumræðu á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld þar sem hún var gestur leikarans góðkunna, Karls Ágústs Úlfssonar í vikulegum þætti hans, Helginni. "Það er þóttinn sem er að fara með ráðamenn," sagði hún og taldi sig sjá það í auknum mæli í fari þeirra stjórnmálamanna sem fá völdin allt í einu upp í hendurnar að þeir telja sig vera hafna yfir almenning í landinu; þeir þurfi ekki lengur að tala við þjóðina, heldur fremur niður til hennar.
Þessi þótti komi sumsé í staðinn fyrir það eðlilega og skilningsríka samtal sem þurfi að vera öllum stundum á milli þings og þjóðar. Þetta sé meðal annars ástæðan fyrir velgengi Pírata nú um stundir; þeir tali sama mál og allur almenningur og þykist aldrei vera merkilegri en hann. Þóttinn og yfirlætið sé aftur á móti þess eðlis að gera fólk alltof upptekið af sjálfu sér. Og það kunni aldrei góðri lukku að stýra.
Hægt er að sjá klippu með greiningu Jónu Hrannar hér neðar á forsíðunni á hringbraut.is, svo og þáttinn í heild sinni hér.