Vandi á höndum ef órg fer fram

Stjórnarskrárfélagið hefur birt ályktun vegna fundarboðs Ólafs Ragnars sem heldur blaðamannafund kl. 16.15 á Bessastöðum í dag.

\"Ef að núverandi forseti mun bjóða sig fram á nýjan leik, er ljóst að okkar þjóð er vandi á höndum. Alvarleikinn snýr að því að þá er það ljóst að bæði getur sitjandi forseti og sitjandi ríkistjórn setið við völd, án þess að aðrir komist að. Völdin eru þannig kominn úr höndum á fólkinu í landinu, og lýðræðinu er ógnað,\" segir í ályktun Stjórnarskrárfélagsins.

\"Það sem vantar eru skýrar línur um stjórnarfarið og valddreifingu og skýrar línur um hvernig lýðurinn fær tækfæri til að koma að ákvörðunum sem varðar þjóðina sjálfa og þar með talið valdið til að ríkja, stjórna og þiggja laun frá ríkinu. Þetta sýnir enn og sannar mikilvægi þess og öskrandi ástæðu fyrir því að við fáum nýja stjórnarskrá hið fyrsta, sem tekur af öll tvímæli hvað þetta varðar,\" segir í ályktun Stjórnarskrárfélagsins á facebook-síðu samtakanna.