„Við fengum þau skelfilegu tíðindi fyrir nokkru að það stendur til að vísa vinum okkar, Muhammed, Nihu og Faisal úr landi næstkomandi mánudag. Við erum algjörlega eyðilögð yfir þessu. Þau hafa verið hér á landi í tvö ár. Múhammeð er besti vinur yngsta sonar míns, Illuga, og þeir hafa vaxið og dafnað saman síðan þeir voru fjögurra ára gamlir. Múhammed hefur aldrei búið í Pakistan.“
Þetta segir Valur Grettisson, ritstjóri Reykjavík Grapevine og annar af þáttastjórnendum Stóru málanna sem eru sýndir á hringbraut, á Facebook-síðu sinni. Hann stendur fyrir undirskriftasöfnun þar sem skorað er á stjórnvöld að virða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og hættu við brottvísun Muhammeds Zohair Faisal og fjölskyldu hans þann 3. febrúar næstkomandi. Í Pakistan bíður þeirra ekkert nema óvissa en þangað hefur drengurinn aldrei komið og foreldrarnir ekki í tíu ár. Valur segir:
„Ef þessum hjartahlýja dreng verður vísað úr landi, eru Íslendingar kannski að vísa fyrsta nóbelsverðlaunahafanum sínum í raungreinum úr landi. Við tókum fljótt eftir því að hann er einstakur námsmaður, hann er jafnfær í stærðfræði og börn sem eru um helmingi eldri en hann, fyrir utan að Muhammed er með einstakt hjartalag,“
segir Valur og bætir við:
„Þetta er svo hrópandi óréttlæti að maður getur ekki annað en stigið fæti niður og mótmælt.“
Þá segir Valur að ef ríkisstjórninni sé alvara að ætla sér að vera mannúðlegt ríki sem virðir mannréttindi barna muni þau koma í veg fyrir að fjölskyldunni verði hent úr landi, í það minnst fresti brottför þeirra og endurskoði aðstæður fjölskyldunnar og taki til greina þau verðmætu tengsl sem þau hafi myndað við land og þjóð. Valur skorar á fólk að skrifa undir á change.org og mótmæla brottvísuninni.
Á undirskriftasíðunni segir að fjölskyldan hafa ærna ástæðu til að óttast hvað tekur við þeim í Pakistan þaðan sem þau flúðu og staða barnsins verður miklu verri en það sem hann hefur hér. Þar segir:
„Muhammed er einstaklega heillandi strákur, brosmildur, hlýr og lífsglaður. Hér hefur hefur Muhammed verið í meira en tvö ár og tengst samfélaginu sterkum böndum. Hann er búinn að eignast marga vini, leikskólafélaga á Dvergasteini og skólafélaga í Vesturbæjarskóla og Skýjaborgum. Hann talar lýtalausa íslensku, er frábær námsmaður svo eftir er tekið og hefur tekist að bræða hjörtu allra þeirra sem hafa kynnst honum.
Barnasáttmálinn kveður á um að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang í ákvörðunum stjórnvalda. Það felur meðal annars í sér að tryggja líf barns, þroska og öryggi, óháð lagalegri stöðu eða athafna foreldra hans eða hennar.
Þegar málsmeðferð ungs barns hefur staðið yfir í rúmlega tvö ár bera stjórnvöld ríkar skyldur gagnvart barninu, sem dvalið hefur hér stóran hluta ævi sinnar og aldrei séð heimaland foreldranna.
Íslensk stjórnvöld hafa gefið það út að Ísland skuli verða besta land í heimi fyrir börn.
Sýnum það í verki.“
Hér má finna undirskriftasöfnunina.