Vallarlýsing við gervigrasvelli Þróttar í Laugardal og Leiknis við Austurberg verður endurnýjuð í sumar. Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út kaup á búnaði og tilheyrandi framkvæmdir vegna endurnýjunar á vallarlýsingu við gervigrasvelli Þróttar í Laugardal og Leiknis við Austurberg í Breiðholti.
Verkið felst í að setja upp nýjan lýsingarbúnað með LED lýsingu en gert er ráð fyrir að núverandi ljósamöstur verði óbreytt. Perur í núverandi búnað eru ófáanlegar þar sem framleiðsla þeirra hefur verið bönnuð vegna umhverfissjónarmiða. Nýr búnaður verður mun umhverfisvænni en LED lýsing er orkusparandi. Er kostnaður vegna verkefnisins áætlaður 60 milljónir króna.