Hérðasdómur Reykjaness hefur hafnað kröfu Valitors um að nýtt undirmat verði gert á tjóninu sem Wikileaks varð fyrir þegar Valitor lokaði greiðslugátt samtakanna 2011.
Valitor vildi ekki una 3,2 milljarða mati á tjóni DataCell og Sunshine Press Productions, rekstrarfélags Wikileaks.
„Standi þessi niðurstaða óhögguð er ljóst að það er ekki annarri tölu til að dreifa um fjárhæð tjónsins,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður DataCell og Sunshine Press Productions í samtali við Fréttablaðið.
Þinghald vegna aðalmeðferðar málsins hefur verið boðað 17. maí næstkomandi. Ólafur Eiríksson lögmaður Valitors segir ekki liggja fyrir hvort niðurstaða héraðsdóms verði kærð til Landsréttar en ef svo fari muni það væntanlega seinka aðalmeðferð í héraði fram á haust.