Valgerður í áfalli: „alveg skelfilegt. blóðugur pappír og hættulegt fyrir alla“ – lögreglan sagðist ekkert geta gert

„Við erum bara að fara af hundasvæðinu núna ég og sonur minn en við komum hingað með hundinn minn þegar við sáum að það var annar hundur að þefa hérna í kringum ruslatunnuna,” segir Valgerður Árnadóttir í samtali við blaðamann Hringbrautar.

Valgerður og sonur hennar komu að óskemmtilegri aðkomu á hundasvæðinu í Hafnarfirði rétt í þessu en á víð og dreif um svæðið mátti sjá sprautur, lyfjapoka og annað dót notað til fíkniefnaneyslu. Valgerður segir:

„Þetta voru held ég fimm nálar og þrjár sprautur og svo fullt af öðru dóti. Ég hringdi strax í Hafnarfjarðarbæ og við erum búin að vera hérna núna í alveg klukkutíma. Ég vildi ekki fara héðan út af því að það voru börn hérna. Ég heyrði í börnum hérna rétt hjá og síðan eru hérna auðvitað hundar og fólk og það gæti fólk stigið á þetta. Þetta er auðvitað stór hættulegt.”

\"\"

Þann klukkutíma sem Valgerður og sonur hennar hafa beðið á svæðinu hefur engin látið sjá sig frá Hafnarfjarðarbæ og ákváðu þau því að taka málin í sínar eigin hendur svo ekki kæmi til slyss. Valgerður segir að lokum:

„Við hringdum líka í lögregluna og hún sagðist ekkert geta gert nema að segja að það væri manneskja hérna að sprauta sig. Við sonur minn erum búin að týna þetta upp og setja í poka og erum að fara með þetta á Sorpu. Þetta varð svo rosalega raunverulegt fyrir okkur hvernig þetta er. Við erum að tala um alveg helling af dóti sem var hérna út um allt. Alveg skelfilegt, blóðugur pappír og allt. Þetta er hættulegt fyrir alla, fólk jafnvel sér þetta ekki og gæti stigið á þetta og fengið lifrarbólgu eða eitthvað verra.”