Sakar flokk sinn um áróðursbrögð

"Í vandræðagangi sínum kastar ríkisstjórnin boltanum til ESB og vonast til að þar á bæ verði kveðið upp úr með það að umræðunum sé slitið," skrifar Valgerður Sverrisdóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins í nýjum pistli sínum á hringbraut.is og telur furðu sæta að umsóknin hafi ekki fengi að vera áfram á bið, ellegar leggja málið í dóm þjóðarinnar svo sem lofað var fyrir ksoningar."Því er haldið fram að þjóðin vilji ekki aðild að ESB og þess vegna sé rétt að hætta. Vissulega hafa skoðanakannanir síðustu misseri sýnt að svo sé.  Sá hópur sem vill að viðræðum sé lokið er þó stærri en hinn og um það hefur málið snúist upp á síðkastið," skrifar Valgerður.


Valgerður segir einnig að það sé ljóst að tillaga um að slíta viðræðum hafi ekki verið tekin inni í stjórnarráðinu. „Þegar tekið er mið af hvað ráðherrarnir eiga erfitt með að svara fyrir gjörninginn er ljóst að tillagan hefur verið samin utan stjórnarráðsins. Ég læt lesendur um að velta fyrir sér hvaðan hún gæti hafa komið.“


Hún beinir líka orðum sínum til framsóknarmanna: "Hafa þarf í huga að afstaða framsóknarmanna mótast mjög af málflutningi forystumanna flokksins.  Þeir hafa því miður flutt áróður sem hefur á stundum verið ómálefnalegur. Þess má geta að á Flokksþingi Framsóknarflokksins 2009 var samþykkt að sækja um aðild að ESB með ákveðnum skilyrðum. Sú forysta sem þá ríkti talaði fyrir aðildarviðræðum. Það er því líklegt að allt annað yrði upp á teningnum ef samningur lægi á borðinu og hægt væri að tala út frá staðreyndum."