Valgerður spyr: Hvers vegan ekki? – Hvetur fólk til að prófa að gerast vegan

Valgerður Árnadóttir, formaður Samtaka grænkera á Íslandi, spyr í nýjum skoðanapistli á Vísi.is, „hvers vegan ekki?“

Í pistlinum vekur Valgerður athygli á Veganúar sem haldinn er í janúarmánuði ár hvert með það að markmiði að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða og kynna kosti grænkerafæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd.

Að sögn Valgerðar er áskorunin haldin í sjöunda sinn þetta árið og segir hún stefna í metþátttöku í ár.

Valgerður segir þrjár mismunandi eða samtvinnaðar ástæður fyrir því að fólk taki þátt í Veganúar; fyrir dýrin, fyrir umhverfið eða fyrir heilsuna.

„Það eru fjölmargir kostir við að taka upp grænkeralífstíl og öll geta prófað í einn mánuð,“ segir Valgerður jafnframt í pistli sínum.

Hún minnir á upphafsfund Veganúar sem hefst í kvöld kl 20 og verður streymt á Facebook og Zoom.

Pistil Valgerðar má lesa í heild sinni hér.