Valgerður kærði nauðgun og fékk meiðyrðakæru í gegnum Facebook: „Ég átti engan séns“

„Mér var úthlutað réttargæslukonu en við tengdumst aldrei neitt. Allt andrúmsloftið í yfirheyrslunum var rosalega þurrt og óþægilegt. Mér leið alltaf eins og ég þyrfti að berjast fyrir því að reyna að sannfæra viðstadda um að ég væri ekki að ljúga, líka réttargæslukonuna,“ segir Valgerður Þorsteinsdóttir, kona sem kærði valdamikinn mann í Grímsey fyrir nauðgun árið 2014.

Hún mun stíga fram með alla söguna í helgarblaði Fréttablaðsins sem kemur út á morgun.

Valgerður segist hafa verið fjórtán ára þegar brotin hófust. „Það kom mér mjög á óvart hve erfitt var að fara í yfirheyrslurnar,“ segir hún.

Þá hafi henni fundist hún vera komin aftur til miðalda. „Ég átti engan séns gegn kerfinu,“ segir Valgerður með miklum þunga. Þá lýsir hún hvernig tilfinning það var að sitja í tíma í framhaldsskólanum sínum þegar lögmaður mannsins sem hún kærði til lögreglu sendi henni meiðyrðakæru í gegnum skilaboð á Facebook.