Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og þingmaður Norðausturkjördæmis til fjölmargra ára fer lofsamlegum orðum um íslenskt heilbrigðiskerfi í dag eftir að hafa fengið blóðtappa við heilann. Hún er á góðum batavegi.
Á fésbók sinni í dag segir hún að þetta mikilvæga líffæri sem heilinn er, hafi fengið blóðtappa í heimsókn fyrir um viku síðan: \"Ég fékk frábæra þjónustu í hinu íslenska heilbrigðiskerfi og er á batavegi,\" skrifar hún þar.
Valgerður, sem búsett er á Lómatjörn við utanverðan Eyjafjörð, kveðst hafa verið stödd í höfuðborginni þegar blóðtappinn lét á sér kræla - og fengið því þjónustu á þjóðarsjúkrahúsinu: \"Yndislegar dætur mínar hugsuðu vel um mig en eiginmaðurinn var fyrir norðan að sinna skyldustörfum. Kemur suður í dag,\" skrifar Valgerður á fésbók sinni.