Það vantaði ekki súrrelísku skemmtisögurnar í spjalli þeirra Valgeirs Guðjónssonar, tónlistarmanns og Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld.
Það er enda af nógu að taka þegar fjörleg ævi Valgeirs er til umræðu, ekki síst tónleikasögurnar úr skrautlegum ferðum Stuðmanna út um allt land, en Valgeir var einn stofnenda þeirrar grúppu sem var jú eiginlega bara brandari sem átti að vara eina kvöldstund eða svo, en Valgeir var fyrir í annarri sveit sem var að gera það aldeilis gott um það leyti sem gleðisveitin kom til sögunnar, en vel er farið yfir sögu Spilverks þjóðanna í þættinum sem upphaflega hét raunar allt öðrum nöfnum á borð við Egils og Hassanssmjör, svo sem fram kemur í viðtalinu.
Valgeir semur ennþá fjölda laga og stefnir að útgáfu á nýrri plötu með lagasmíðum sínum og er einmitt um þetta leyti að safna fjármagni til verksins á Karolina Fund rétt eins og svo margir aðrir listamenn sem sækja fjárstyrk til almennings til að geta auðgað menninguna.
Í viðtalinu lýsir Valgeir því hvernig móðir hans kom tónlistinni í hann, en hún var listamaður af guðs náð, jafnt í músík sem hönnun, en æskuárunum varði hann jöfnum höndum í fjölmenni höfuðborgarinnar og fámenni Galtarvitans við ysta haf á Vestfjörðum sem hafði mikil áhrif á hann. Valgeir segist vera búinn að loka hringnum, því hann sé aftur fluttur í kyrrðina og fámennið, nefnilega á Eyrarbakka þar sem hann og Ásta kona hans reka Bakkastofu sem er opin gestum og gangandi og tilvalin fyrir allskyns fundi, litlar ráðstefnur og samkomur fólks. Þar fagna þau gestum með sögum, söng og spili og bjóða hópum nú á næstu vikum að upplifa gömlu jólin í samstarfi við hið rómaða Rauða hús, en hægt er að fá nanari upplýsingar um starfsemina á bakkastofa.is.
Þátturinn verður endursýndur á hringbraut í dag en er einnig sjáanlegur í heild sinni hér á hringbraut.is.