Valgarð er látinn

Valgarð Briem hæstaréttarlögmaður lést á Landspítalanum 31. júlí síðastliðinn. Hann var fæddur 31. janúar 1925 í Reykjavík. Valgarð tók þátt í íslenskum stjórnmálum í tugi ára og var meðal annars lengi varaborgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, ásamt því að gegna ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og borgarbúa. Greint er frá andláti Valgarðs í Morgunblaðinu í dag.

\"\"Valgarð var lögfræðingur að mennt eh hann lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 1945 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1950.

Valgarð var lögfræðingur Bæjarútgerðar Reykjavíkur árin 1951-1959 og jafnframt framkvæmdastjóri umferðarnefndar Reykjavíkur á árunum 1955-59. Forstjóri Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar var hann frá árinu 1959 til árins 1966.

Valgarð var í stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík 1943-1949, og formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta á árunum 1947 til 1948. Hann sat í þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur árin 1963-1965 og formaður árin 1966-1967. Þá var hann formaður nefndar til að annast framkvæmd breytingar úr vinstri í hægri umferð og starfaði hún til ársins 1969.

Þá var Valgarð formaður Samtaka sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi 1969-1971, formaður Landsmálafélagsins Varðar 1972-1973. Í flokksráði Sjálfstæðisflokksins 1972. Varaborgarfulltrúi var hann fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík 1974 til 1986, formaður umferðarnefndar Reykjavíkur 1974-1978. Þá sat hann í stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar 1974-1982 og gegndi formennsku þar þann tíma. Einnig var hann formaður umferðarráðs árin 1986 til 1990.

Valgarð var tekinn inn í Oddfellow-stúkuna nr. 5 Þórstein árið 1963 og var mjög virkur í starfi hennar. Þá var hann sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar 1975.