Valdníðsla einkennir fréttir ársins

Kjarninn hefur tekið saman 25 stærstu fréttir ársins 2015.

Bæði er um að ræða innlendar og erlendar fréttir en stundum fer það tvennt saman líkt og með samkomulagi um lofstlagsmál í París nýverið.

Afnám fjármagnshafta er sú frétt innlend sem ritstjórn Kjarnans telur mikilvægasta  af þeim fréttum sem vefmiðillinn greindi frá á árinu sem er að líða.

Menningarlegur rasismi í íslenskri orðræðu er einnig ofarlega á blaði Kjarnans yfir fréttir ársins.

Vitundarvakning og umræða um kynferðisbrot er ein af fréttum ársins sem og hörðustu kjardeilur um langt skeið innanlands.

Nokkrar fréttir ársins 2015 hverfast um ósigra einstakra ráðherra. Þannig segir Kjarninn að Orku Energy málið og sú raunaganga Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra sem tengist Kínaferðinni og tengslum hans við stjórnarformann Orku Energy sé ein af innlendum fréttum ársins.

Þá tilgreinir Kjarninn snautleg örlög náttúrupassa Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðarráðherra sem eina af fréttum ársins.

 ESB-slita bréf Gunnars Braga er einnig ein af stórfréttum síðasta árs.

Sem og áfelllisdómur Umboðsmanns Alþingis yfir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrum ráðherra, þar sem sagði að hún hefði farið langt út fyrir valdsvið sitt sem ráðherra vegna lekamálsins og lögreglurannsóknar Stefáns Eiríkssonar sem sagði af sér skömmu síðar.

Er þar ónefndur fróðeikur ýmisskonar sem og erlendar fréttir ársins en úttekt Kjarnans er vönduð og aðgengileg og má lesa hana í heild hér.