Valdimar: dey ef ég grennist ekki

\"Ég þarf að vita að ég muni ekki enda einn í kjallaraíbúð og deyja fyrir aldur fram.\" Þetta er meðal þess sem Valdimar Guðmundsson tónlistarmaður skrifar í opinskárri færslu á Facebook um versnandi heilsufar sitt sem hann rekur til ofþyngdar sinnar.
 

Valdimar hefur notið fádæma vinsælda fyrir söng sinn og tónlist um árabil, en áhangendur hans vita það jafn vel og hann sjálfur að þar stendur ekki grannur söngvari uppi á sviði. Hann hefur barist við aukakílóin lengi vel og þeim hefur fjölgað fremur en hitt á síðustu árum. Nú er svo komið að hann þjáist af kæfisvefni sem hefur truflað svefn hans í þónokkurn tíma. Eftir að hafa orðið fyrir óþægilegri reynslu eina nóttina og átt erfitt með andardrátt hafi hann orðið skelkaður og virkilega fengið nóg af þessu ástandi. Sú reynsla gerði það að verkum að hann fann sig knúinn til að deila þessum þönkum sínum á dögunum með vinum sínum og ættingjum á Facebook. 

Nú þýði ekkert lengur en að horfast í augu við veruleikann og taka á sínum málum; það sé nú eða aldrei að gera eitthvað í sínum málum. Hann sé nú þegar byrjaður að huga að matarræðinu, hreyfa sig með hjálp einkaþjálfara og sé einnig að ganga til sálfræðings sem hann segir mikilvægt að gera í svona vinnu. Valdimar segist upplifa mikla pressu um að nú megi ekkert fara úrskeiðis og það var eitthvað sem hann hafi ekki alveg séð fyrir með skrifum sínum á Facebook. Nú stefni hann að því að taka einn dag í einu og segist vonast til að fá svigrúm til þess.