Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, og Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, voru gestir í Þjóðbraut á Hringbraut í dag, á sunnudagsmorgni.
Athygli vakti í vikunni þegar mynd birtist af hinu nýja þjóðahagsráði, ekki síst þar sem ráðið skipa fimm miðaldra karlar. Engin kona situr þar.
Elín Björg og Ólafía upplýstu í þættinum að valdið í landinu hafi hafnað vilja launþega að ráðið ræddi einnig félagsmál. Því er sem er, þar sitja bara karlar, engin kona og enginn frá launþegum, frá almenningi.