Tómas Ellert Tómasson, byggingarverkfræðingur og bæjarfulltrúi, sækist eftir öðru sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Miðflokkurinn er nú þegar með tvo þingmenn í kjördæminu, þá Birgi Þórarinsson og Karl Gauta Hjaltason.
„Tímasetning tilkynningar minnar er engin tilviljun. Hana ber uppi á 104 ára afmælisdegi móðurömmu minnar heitinnar sem átti sínar sterku rætur hér á Suðurlandi. Fyrir henni bar ég ætíð mikla virðingu enda lá hún aldrei á skoðunum sínum hvort sem var um strákslæti mín eða þjóðmálaumræðuna,“ segir í yfirlýsingu frá Tómasi.
Tómas er sem bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg, er það eina sveitarfélagið þar sem flokkurinn er í meirihluta. Hefur því gjarnan verið sagt að Tómas sé valdamesti maðurinn í flokknum.
„Ég tel mig ekki þurfa að sanna eitt eða neitt, fyrir einum né neinum. Ég hef látið verkin tala á liðnu kjörtímabili í Svf. Árborg sem segir alla þá sögu sem segja þarf um verk mín, orð og efndir.“