Val á nafni á nýtt sveitarfélag frestast

Val á nafni á sameinað sveitarfélag Sandgerðisbæjar og Garðs frestast fram í apríl. Ástæðan er sú að óskað var eftir nýrri umsögn hjá Örnefnanefnd. 

Upphaflega var áætlað að atkvæðagreiðsla færi fram fyrir páska, að því er kemur fram í Víkurfréttum. Að mati nafnanefndarinnar er æskilegt að íbúar fái góðan tíma til að vega og meta tillögur að nýju nafni. Kynning á tillögum að nöfnum fer fram þegar umsagnarferli Örnefnanefndar er lokið, segir í tilkynningu frá nafnanefnd sveitarfélaganna.