Val á æðsta dómara eftir hentugleika

Davíð Þór Björgvinsson, prófessor og fyrrum dómari við Mannréttindadómstól Evrópu segir dómnefnd geta valið hvern sem hún kýs í embætti dómara við Hæstarétt og sé í lófa lagið að haga viðmiðunum við valið eftir hentugleikum hverju sinni.

Sem dæmi hafi dómnefnd síðast þegar skipað var í embætti Hæstaréttardómara talið ástæðu til að tala niður Mannréttindadómstól Evrópu með því að segja hann starfa á þröngu sviði. Þekkingu á störfum dómstólsins hafi greinilega verið ábótavant á vettvangi nefndarinnar, sem ekki sá ástæðu til að geta þess að Óbyggðanefnd starfar á þröngu starfssviði. Davíð Þór bendir á að dómnefnd verður ekki sótt til ábyrgðar fyrir störf sín öndvert við ráðherra þegar ákvörðunarvald er á hans hendi.

Þetta kom fram í samtali Davíðs Þórs Björgvinssonar við Ólafana í þætti þeirra á Hringbraut í gærkvöld, en þátturinn er endursýndur í dag og er einnig hægt að nálgast hann á vef stöðvarinnar.

Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar og fjalla um þjóðfélagsmál eins og þeim er einum lagið.