„Ég held að það hafi orðið ákveðin viðhorfsbreyting á þessum tíma og hluti af henni i verið að gerast bara á allra síðustu árum en annað er svona meira sem hefur verið að gerast smátt og smátt. Það eru kannski svona atriði eins og að ganga betur um, flokka sorp og úrgang, það er svona eitthvað sem hefur verið viðvarandi og svona seytlast inn í huga fólks smátt og smátt“, segir umhverfisráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson í nýjum þætti um umhverfismál á Hringbraut, Súrefni.
Tæplega þrír áratugir eru síðan málaflokknum var skipaður sérstakur sess innan stjórnarráðsins með stofnun sérstaks umhverfisráðuneytis. Guðmundur Ingi var skipaður í nóvember í fyrra og er sem þekkt er fyrrverandi framkvæmdastjóri Landverndar.
„Svo erum við með mál eins og loftslagsmálin sem að lengi vel var litil svolítið á að fólk væri annað hvort með eða á móti þeim, eða trúði þeim eða trúði ekki, það er, hlýnun jarðar“, segir Guðmundur Ingi og ennfremur:
„Ég man alltaf svo vel eftir þessu að það var stór alþjóðlegur fundur í Kaupmannahöfn 2009. Og þá voru viðmælendur í kastljósinu þar teknir, einn sem trúði því að loftslagsbreytingar og hlýnun jarðar væri að eiga sér stað en annar sem að taldi að svo væri ekki. Það er árið 2009, það eru ekki nema níu ár síðan. Árið 2015 þegar stóri fundurinn er haldinn í París þá verður einhver vakning, ekki bara á Íslandi heldur alls staðar“.
Þáttaröð um umhverfisvernd hóf göngu sína á Hringbraut á mánudagskvöldið og verður vikulega á dagskrá alla mánudaga.Alla mánudaga munu Linda Blöndal og Pétur Einarsson ræða við bæði fræðimenn og leikmenn um umhverfisvernd.