Vafasamt met hannesar margbætt

Í forsetakosningunum fyrir fjórum árum varð sá einstaki atburður að einn frambjóðandinn náði ekki eins prósenta fylgi. Sá var Skagfirðingurinn og lögreglumaðurinn fyrrverandi, Hannes Bjarnason. Hannes fékk 0,98 prósenta fylgi.

Nú ber svo við að fjórir frambjóðendur slógu þetta vafasama met Hannesar. Ástþór Magnússon, sem hefur sóst eftir embættinu oftar en nokkur annar hefur aldrei áður átt eins litlu fylgi að fagna, og auk hans voru undir einu prósenti Elísabet Jökulsdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir og Hildur Þórðardóttir.