Væntingar versna og kortavelta minnkar

Horfurnar í atvinnulífinu hafa versnað, að mati greiningardeildardeildar Arion banka sem hélt athyglisverða ráðstefnu í hádeginu á mánudag undir heitinu: Sett í lága drifið. Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, er á meðal gesta Jóns G. í kvöld. „Það má auðvitað vara sig á því að tala efnhagslífið ekki niður,“ segir Stefán. „Það góða í stöðunni er að það verður hagvöxtur á næstu árum en það dregur úr honum. En hann hefur raunar verið óvenju mikill undanfarin ár.“ Þeir Jón G. koma víða við í viðtalinu. Ræða meðal annars að væntingar stjórnenda innan atvinnulífsins til næstu sex mánaða hafi versnað verulega og að kortavelta hafi dregist saman. Launakostnaður sem hlutfall af tekjum hefur hækkað talsvert á undanförnum árum. Fram kemur að Arion banki geri ráð fyrir að fjárfestingar verði í kringum 1.400 milljarðar króna á næstu árum. En stóra spurningin er auðvitað hvort fyrirtæki muni halda að sér höndum í fjárfestingum þegar útlitið hefur dökknað. Fjárfestingar, hvort heldur er í atvinnulífinu, húsnæði og hjá hinu opinbera, eru nauðsynlegar til að viðhalda kröftugum hagvexti.