Finnur Árnason forstjóri Haga segir Sindra Sigurgeirsson formann Bændasamtaka Íslands stunda \"ríkisstyrktan rógburð\" og vera með \"svívirðilega aðdróttun\" í sinn garð og íslenskrar verslunar.
Finnur og Sindri hafa átt í ritdeilum um verð á landbúnaðarvörum á síðum Fréttablaðsins - og í gær stingur Finnur niður penna, kveðst ekki skilja af hverju formaður bænda sé ekki með honum í liði þegar kemur að arfavitlausri og óábyrgri hækkun á mjólkurvörum, þar á meðal á smjöri um 11,6% sem verðlagsnefnd ákvað nýverið, en hún renni að minnstu leyti til bænda og aðallega til framleiðandans: \"Ætla mætti að ég og formaður bænda ættum samleið í þessu máli,\" skrifar Finnur í dag og svarar sjálfum sér: \"Svo var ekki. Ég kom við viðkvæman blett. Svo viðkvæman að formaður bændasamtakanna hætti að vera talsmaður bænda. Bændur voru skildir eftir útundan og kerfið varið á kostnað bænda og heimila,\" skrifar forstjóri Haga.
Finnur segir Sindra gefa í skyn í sínum skrifum að Hagar hafi hækkað álagninguna; verslunin sé \"mjög gróf\" í þeim efnum, en því fari fjarri: \"Hagar eru skráðir í Kauphöllina og er skylt að birta álagningu sína opinberlega,\" skrifar Finnur og bendir á að álagning félagsins hafi lækkað, þvert á slúður Sindra: \"Nýjustu tölur staðfesta að félagið hefur skilað öllum skattabreytingum og styrkingu krónunnar að fullu til sinna viðskiptavina,\" skrifar Finnur enn og segir þessa \"svívirðilegu aðdróttun\" Sindra eiga sér hvergi samastað og vera ósanna. Þetta sé \"ríkisstyrktur rógburður\" frá sérhagsmunasamtökum formannsins sem fái 500 milljónir á ári af fjárlögum í hagsmunabaráttu, hærri upphæð en allir stjórnmálaflokkar.
Forstjóri Haga bendir formanni Bændasamtakanna á að betur fari að taka til í eigin ranni en ljúga til um aðra; landbúnaðarkerfið kosti neytendur 16 til 18 milljarða á ári, bændur beri þar lítið úr býtum. neytendur greiði hátt verð og kostnaður ríkissjóðs sé umtalsverður, en á meðan hagi Mjólkursamsalan sér eins og ríki í ríkinu, óháð hagsmunum bænda sem beri skarðan hlut frá borði.