„Margir viðskiptavinanna eru nýbakaðir feður á aldrinum 30 til 40 ára. Þeir borga vel, eru kurteisir og ég mun eiga skuldlausa íbúð heima eftir nokkur ár.“
Þetta segir vændiskona frá Austur-Evrópu í viðtali við Frosta Logason. Viðtalið verður sýnt í kvöld. Konan kemur til Íslands einu sinni í mánuði og dvelur þá hér á landi í viku.
Í úttekt DV frá því á síðasta ári kom fram að í Reykjavík er að finna tugi vændiskvenna af ýmsum þjóðernum. Þar pantaði blaðamaður DV þjónustu hjá yfir 20 konum á einni kvöldstund þar sem verð fyrir hálftíma var 25 þúsund en 35 þúsund fyrir klukkutíma. Fyrir endaþarmsmök var rukkað 15 þúsund aukalega.
Konurnar voru með aðsetur víða miðsvæðis og gistu margar í leiguíbúðum Íslendinga í gegnum hið fræga Airbnb eða á gistiheimilum. Blaðamenn DV fylgdust með nokkrum húsum þar sem vændiskonur höfðu aðsetur og urðu þar vitni að því þegar íslenskir karlmenn keyptu sér þjónustu kvennanna. Í grein DV sagði að niðurstaðan væri sláandi. Orðrétt sagði í DV:
„Vændi grasserar í Reykjavík, í leiguíbúðum, gistiheimilum og kampavínsklúbbum sem aldrei fyrr, þar sem allt er í boði. Það er hægt að borga fyrir kynlíf, endaþarmsmök, munnmök, láta berja sig og jafnvel borga fyrir það að fá að berja konur. Og það gera bæði erlendir og íslenskir karlmenn. Margar konurnar virtust vera á eigin vegum en rannsókn DV leiddi einnig í ljós að svo virðist sem þriðji aðili hafi tekjur af vændi.“
Það sama ár tók DV viðtal við Evu Dís, fyrrverandi vændiskonu, sem hefur stundað vændi hér á landi og erlendis. Hún sagði að á Íslandi vaði vændiskonur út í óvissuna til ókunnugra manna eða þurfi að bjóða þeim heim til sín og rjúfa þar með eigin heimilisfrið. Raunveruleiki vændiskvenna á Íslandi sé mun harðari en þeirra sem starfi í Danmörku og sagði Eva Dís að kvenfyrirlitningin sé meiri hérlendis. Þá sagði Eva Dís að vændi væri alltaf ofbeldi, ekki atvinnugrein. Hún bætti við:
„Asnalegt að tala um þetta sem vinnu, vinna við að láta brjóta á sér.“
Vændiskonan sem verður í viðtali í kvöld á Stöð 2 er ósammála þessu. Frosti Logason, sem tekur viðtalið og er birt í Íslandi í dag, segir viðmælanda sinn vera sátta og ánægða með það sem hún gerir. Frosti segir:
„Viðtal við unga konu frá Austur Evrópu í Íslandi í dag í kvöld. Hún hefur starfað sem vændiskona í Reykjavík síðastliðið ár og líkar vel.“
Þá er vitnað í konuna sem segir:
„Ég vel þetta sjálf, hef aldrei verið misnotuð og líður vel með það sem ég er að gera. Ég gæti fengið mér venjulega vinnu heima, en hún myndi aldrei borga svona vel.“