Þjónusta vændiskvenna hér á landi virðist ekki hafa fylgt verðlagsþróun á síðustu árum og hefur virði þjónustu þeirra heldur dregist aftur úr miðað við það sem aðrar starfsstéttir bera úr býtum.
Þetta kemur fram í óformlegri könnum Fréttablaðsins í dag sem ræddi nið nokkrar vændiskonur sem rukka yfirleitt á bilinu 25 til 35 þúsund fyrir samfarir. Það er álíka mikið og íslenskar vændiskonur fengu fyrir þjónustu sína fyrir áratug, en hefði hún fylgt veerðlagsþróun væru konurnar að fá yfir 50 þúsund krónur fyrir hverjar samfarir í dag.
Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur, sem blaðið ræðir við vegna þessa segir tölurnar benda til þess að jafnvægi ríki á milli framboðs og eftirspurnar í greininni: \"Það er engin verðlagsnefnd í vændisbransanum,\" segir hann.
Hann bendir á að hér á landi sé vændistarfsemi neðanjarðar og hvorki neytendur né seljendur geti leitað til þripja aðila með vandamál sín: \"Erlendis er þetta bransi. Þar eru stéttarsamtök vændiskvenna sem berjast fyrir réttindum varðandi hreinlæti og aðstöðu og rétti til atvinnuleysisbóta. Hér virðist þetta vera meira og minna undir yfirborðinu,\" segir Helgi vip blaðið..