Vaðlaheiðargöng 14% fram úr áætlun

Fullljóst þykir að kostnaður vegna Vaðaheiðarganga mun fara vel fram úr upphaflegri áætlun - og þar af leiðandi mun það lán sem tekipð var til gangagerðareinnar ekki duga.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en eins og fram hefur komið í fjölmiðlum á undanliðnum mánuðum hafa orðið miklar tafir á verkinu vegna vatnsaga, jafnt Eyjafjarðarmegin og Fnjóskadalsmegin. Hefur af þeim sökuim þurft að fresta burunum og sprengingum svo vikum skiptir.

\"Eins og staðan lít­ur út núna mun kostnaður fara 14% fram úr áætl­un og þá þarf aukið fé til að klára fram­kvæmd­ina. Stjórn fyr­ir­tæk­is­ins á þó eft­ir að fara bet­ur yfir mál­in og mun skila end­ur­bættri rekstr­aráætl­un í haust og þá mun staðan skýr­ast bet­ur,\" segir Guðlaug­ur Þór Þórðar­son, vara­formaður fjár­laga­nefnd­ar í Morgunblaðinu í morgun, en í svari stjórn­ar Vaðlaheiðarganga við fyr­ir­spurn fjár­laga­nefnd­ar kem­ur fram að kostnaður vegna fram­kvæmd­ar­inn­ar er tal­inn fara 1.500 millj­ón­ir fram úr áætl­un.

Í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir Guðlaug­ur þó að taka þurfi fram að svör stjórn­ar­inn­ar séu til eft­ir­breytni fyr­ir aðrar stofn­an­ir. Hins veg­ar seg­ir hann einnig al­veg ljóst að ekki hafi verið vandað til verka við und­ir­bún­ing af hálfu stjórn­valda; gagn­rýni hafi komið fram en á hana hafi ekki verið hlustað. Nú sé þó komið á dag­inn að sú gagn­rýni hafi átt rétt á sér og úr þeirri stöðu verði að vinna.