V ið eigum aldrei að samþykkja byssur!

\"Foreldrar mínir ólust upp við þau tíðindi þegar þau voru ung í miklum umbreytingum mannkynsögunar að fréttir að utan sögðu frá mannfalli hundruða þúsunda sem staflaðist upp í milljónir þegar á leið, að borgir og byggð ból voru þurkuð út á einni helgi og þessi hryllingur breiddi úr sér yfir alla veröld, afi og amma fóru í gegnum það sama.\"

Svona byrjar athyglisverður pistill Tolla á fésbókarsíðu hans í dag þar sem hann skrifar um vopnaburð lögreglunnar: \"Hryllingurinn var af þeirri stærðargráðu að við getum ekki horfst í augu við hann nema sem \" mannkynsögu\" þar í sögulegum ramma geymum við heimstyrjaldirnar tvær,\" skrifar kúnstnerinn og heldur áfram: \"Nú eru flekaskil í okkar samtíma sem er að taka niður líf hundruða hér í evrópu en hundruð þúsunda í miðausturlöndum , miðað við ástand síðustu aldar eru hér nánast fiðartímar í Evrópu og furðulegt hvernig ótta maskínan magnar upp réttlætingar til þess að við vígbúumst á öllum sviðum.\"

Og Tolli er hugsi: \"Hér á okkar friðsælu eyju er lögreglan vopnuð á einni nóttu og sjálfstýring óttans heldur áfram að keyra með okkur inn í myrkrið. Við eigum að gera allt sem við getum til þess að verja friðinn hér heima sem annarstaðar, ekki slá tommu af í viðleytni okkar til þess að vera full af kærleik og velvild, sama hvað er í gangi. Við eigum aldrei að samþykkja byssur út í daglegt líf okkar.\"

 

Þannig eflum við lausnina að rótum vandans sem er okkar eigin ófullkomleiki og hve fáfróð við almennt erum um hvernig heilinn okkar virkar með sitt öfuga varnarkerfi sem svo auðveldlega tekur yfir alla skynsemi og vit ef við leyfum því að gerast.

Að efla með sér þekkingu á því hvernig við virkum og efla með okkur þá þætti okkar sem við köllum kærleik og velvild er raunsæ leið að uppruna vandans.