Magnús Geir Þórðarsson, útvarpsstjóri segir að brugðist verði við þeirri fullyrðingu þingmannsins Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í Morgunblaðinu í gær að stjórnendur RÚV hafi veitt fjárlaganefnd rangar upplýsingar síðastliðið vor.
Þetta kemur fram á forsíðu Morgunblaðsins í dag, en Guðlaugur Þór hélt því fram að stjórnendur RÚV hefði farið með ósannindi á fundi með þingnefnd og þannig fengið aukaframlög í reksturinn sem ella hefðu ekki skilað sér.
Guðlaugur Þór birti tölvupósta máli sínu til stuðnings, eins og fram kemur í sömu frétt blaðsins, en hann er varaformaður fjárlaganefndar.
\"Við teljum eðlilegt, fyrst þessi staða er komin upp vegna fullyrðinga þingmannsins, \" segir útvarpsstjóri við blaðið í dag \"að kallað sé eftir afstöðu fjármálaráðuneytisins sem getur skýrt hver staða málsins er.\"
Morgunblaðið fjallar ítarlega um RÚV-málið í dag og hefur þar meðal annars eftir Páli Magnússyni, fyrrverandi útvarpsstjóra að húsnæði RÚV sé þrefalt stærra en stofnunin þurfi, en hann bætir því við að ekki hafi tekist að draga úr útgjöldum RÚV frá því það var gert að opinberu hlutafélagi árið 2007.