Útvarpsgjaldið: illugi varð undir

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra nær ekki fram vilja sínum um óbreytt útvarpsgjald á næsta ári - og því verður RÚV af umtalsverðum tekjum. Útvarpsstjóri segir niðurstöðuna mikil vonbrigði.
 
Útvarpsgjaldið lækkar úr 17.800 krónum í 16.400 krónur á næsta ári, en aftur á móti fær Ríkisútvarpið 175 milljónir króna aukalega sem verja á til kvikmynda- og þáttagerðar. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir að fjárframlag til Ríkisútvarpsins verði því áfram það sama 2016 og það var 2015.
 
Stjórnendur Ríkisútvarpsins hafa hins vegar sagt að lækkun útvarpsgjaldsins jafngildi 500 milljónum króna.
 

Illugi lagði fram frumvarp í ríkisstjórn um að útvarpsgjaldið yrði óbreytt á næsta ári, en nú er komið í ljós að hans sögn að sú tillaga hans nær ekki fram að ganga. Hann kvaðst í kvöld vera mjög ánægður með það að komin væri niðurstaða í þetta mál: \"Í þessu er fólginn ákveðinn svona stefnuvísir og eins ákvörðun líka um það að þessu verði veitt til innlendrar kvikmyndagerðar, þáttagerðar, unnar af sjálfstætt starfandi kvikmyndagerðarmönnum. Þannig að útvarpið mun þá efla enn frekar þá þróun sem verið hefur á undanförnum árum í að kaupa efni að utan stofnunarinnar.\"