Útvarp Saga fær engan rekstrarstuðning frá fjölmiðlanefnd

Útvarp Saga ásamt tveimur öðrum fjölmiðlaveitum uppfylltu ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðning frá fjölmiðlanefnd fyrir árið 2022.

Alls hlutu 25 einkareknar fjölmiðlaveitur stuðning fyrir alls 380 milljónir króna. Stuðningurinn má að hámarki vera 25 prósent af stuðningshæfum rekstrarkostnaði fjölmiðla. Það er þó fjöldi umsókna og umfang sem ræður endanlegu hlutfalli.

Frá þessu er greint í Morgunblaðinu.

SagaNet-Útvarp Saga ehf. rekur bæði útvarpsstöðina Útvarp Saga og samnefndan vefmiðil en fjölmiðlanefnd hafnaði umsókn þeirra ásamt umsóknum Nordic Times Media ehf. sem gefur út landkynningarblöð, og Snasabrún ehf. sem rekur vefinn Handbolti.is.

Uppfylla þarf átta atriði sem eru skilyrði fyrir rekstrarstuðningi. Sem dæmi þarf miðillinn að hafa verið á skrá hjá fjölmiðlanefnd í tólf mánuði eða lengur. Hann þarf að hafa að minnsta kosti þrjá starfsmenn í fullu starfi og þarf að vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- eða myndmiðlunar.