Úttekt á rannsóknum kynferðisbrota

Heiða Kristín Helgadóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, telur að stokka þurfi upp ýmislegt í gangverki samffélagsins og vísar þá einkum til mála sem tengjast kynferðisglæpum.

Í ræðu sem hún flutti á Alþingi í morgun ræddi Heiða Kristín kynferðisbrot, nauðganir, hópnauðganir, dómstóla, hlutverk lögreglu, hlutverk lögmanna, hlutverk heilbrigðiskerfisins, hvað væri satt í umræðunni og hvað ósatt.

„Efnt hefur verið til mótmæla, fólk hefur uppi stór orð í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Mörgum finnst viðbrögðin ofsafengin, öðrum finnst þau fullkomlega eðlileg og dómstóli götunar er oftar en ekki blandað inní þetta. Sjálfri finnst mér betra að við sem samfélag séum á þeim stað þar sem við tölum um óþægilega hluti, því það er nefnilega þannig að það sem er óþægilegt fer ekki þó maður horfi í hina áttina því það fer bara inní hnakkann á manni og maður sér það illa en finnur fyrir því. Það er mun farsælla að horfast beint í augun við vandann, fara í gegnum hann og breyta og bæta,“ sagði Heiða.

Og hélt áfram: „Hvað kynferðisbrot varðar spyr ég mig hverju þarf að breyta og hvað þarf að bæta sem snýr að löggjafarvaldinu og framkvæmdarvaldinu. Ég vil ekki sjá samfélagið fara aftur á þann stað þar sem ofbeldi, sama af hvaða toga það er, var þaggað niður og í krafti þeirrar þöggunar fékk ofbeldið að grassera óáreitt.“

Krafa þingkonunnar et eftirfarandi:

„Ég geri þess vegna þá kröfu að við hér inni færumst áfram og horfumst í augu við öll þau álitamál sem lokað samfélag þöggunar hefur alið af sér og skoðum vel og vandlega hvort það sé eitthvað í löggjöfinni eða framkvæmd hennar sem ýtir undir að ofbeldi fái að þrífast. Fyrir mér þarf þessi skoðun að vera nokkuð víð og ná yfir það hvernig við fræðum börnin okkar og styrkjum þau í samskiptum sín á milli og yfir í það hvernig lögreglurannsóknir á kynferðisbrotum fara fram. Því kalla ég eftir því að settur verði á fót hópur fólks úr öllum flokkum, því mér finnst mikilvægt að fulltrúar almennings úr öllum áttum, taki þátt í þessari vinnu og fái til sín sérfræðinga og þá sem starfa við þennan málaflokk og til að ná betur utan um stöðuna og skýri hana. Og ég veit að þessi hópur bíður eftir að taka þátt. Eins veit ég að hér inni eru margir að hugsa það sama og ég.“

 Leiði þessi vinna af sér tillögur að breytingum er það skylda okkar að breyta, því ofbeldi er samfélaginu dýrt í svo mörgum víddum að sögn þingmannsins. „Við höfum öll hér tekið að okkur það hlutverk að standa vörð um almannahag og mér dettur fátt mikilvægara í hug í því samhengi en að berjast fyrir opnu og ofbeldislausu samfélagi.“