Útspil stjórnvalda geti leyst vandann

Ríkisstjórnin ræddi í dag aðgerðir til að liðka fyrir kjarasamningum. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, telur að útspil stjórnvalda vegna samninganna geti leyst vandann. Hann segir þó ekki víst að allir muni sjá það eins og hann. RÚV.is greinir frá.

„Ég tel að það sem við höfum fram að færa geti leyst vandann. En það er ekki víst að það sjái það allir eins og ég,“ segir Bjarni í samtali við RÚV.

Hann segir aðgerðirnar tengjast húsnæðismálum og skattamálum meðal annars. „Við höfum í allan vetur smám saman verið að benda á atriði sem við getum átt samstarf um og nú er kannski komið að því að setja það saman í eitt skjal og staðfesta að þetta standi til að gera á einhverju ákveðnu tímabili. Kannski koma þarna inn einhver ný atriði, eftir því hvernig þetta samtal þróast.“

Bjarni segir einnig að góður samhljómur sé á milli aðila um að lækka skatta. Hann útilokar ekki að breytingar verði gerðar á skattatillögunum í takti við þær kröfur sem verkalýðshreyfingin hefur gert. „Útfærslan er alveg til skoðunar gg við hlustum eftir ábendingum og viljum stíga ölduna með því sem er að gerast á vinnumarkaði. Þannig að það er eitt af því sem kemur til greina að skoða ef menn eru að ná saman.“