Sá líflegi penni, Guðmundur S. Brynjólfsson stingur niður penna í tilefni af landsfundum hægri manna og vinstri um nýliðna helgi og horfir yfir allt það svið með sínum hætti.
\"Höfum fyrirliggjandi nokkuð af ónotuðu baktjaldamakki, skítmennsku og fortölum;\" skrifar kappinn í tilefni á fundum hægri- og vinstrimanna. \"Einnig – í afar takmörkuðu magni – ónotuð hnífasett. Sérhönnuð fyrir bræðravíg.\"
Rithöfundinum leiðist ekki: \"Höfum og allmikið af notuðum hnífum, blóðguðum,\" og segir að einnig sé í boði sértilboð á sýndarmennsku, plús sitt lítið af hverju: \"Höfum einnig fyrirliggjandi fýlu, ónot og særindi – margnota. Fals og fláræði samkvæmt umtali og smeðjugang í ótakmörkuðu magni.\"
Hann hefur greinilega ekki mikið álit á venjulegri íslenskri pólitík: \"Seljum einnig brostin loforð, rökleysur og gamlar stefnuskrár. Þessu til viðbótar: gömul gildi á gjafverði. Hugsjónir fást gefins – ef einhver nennir að sækja þær.\"
Svo mörg voru þau orð, ættuð úr ranni fjórflokksins.