Útrétt bandarísk sáttarhönd

Viðræður um T-TIP Samning um viðskipti og fjárfestingar mætti endurræsa segir ráðherra viðskiptamála í ríkisstjórn Bandaríkjanna.

Þá forseti Bandaríkjanna Barack Hussein Obama sló þessum samningaviðræðum á frest um óákveðinn tíma fyrir þó nokkru síðan.

Nú hefur Wilbur Ross ráðherra viðskiptamála í ríkisstjón Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna sagt að Bandaríkin vilji taka upp þráðinn þar sem frá var horfið.

Ráðherrann sagði þetta á málstofufundi í Berlín nýverið.

Þetta er stór tíðindi sem berast rétt áður en stefnumót helstu iðnríkja heims - G20 stefnumótið - hefst í Hamborg í Þýskalandi.

Og við upphaf samningaviðræðna um útgöngu Stóra-Bretlands úr Evrópusambandinu. 

T-TIP samningurinn um viðskipti og fjárfestingar yrði - ef þá af honum verður - fríverslunarsamningur á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins.

rtá